9. Nóvember Mánudagur
Yndislegt veður í dag eftir storm og ofsarigningu næturinnar. Er að verða frekar þreytt á veikindum og inniveru, er einfaldlega of löt. En semsagt Alfreð Logi var heima veikur í hálfan mánuð, en fór í skóla í morgun, Inga Svein sótti ég í skólann í dag. Hann var búinn að æla allt út inni á klósetti í skólanum og sárlasinn. Vona að allir verði hressir um næstu helgi því þá ætlum við að leggja í hann vestur í Bolungarvíkina fallegu og vera þar í viku. Maren, Jón og stelpurnar ætla trúlega með okkur og vera í einhverja daga..Gaman gman...
5. Október 2009 Mánudagur
Fallegt veður í dag en haustlegt. Bentína systir á afmæli í dag og setur örugglega á tertu, vildi að ég kæmist í kaffi að ekki sé minnst á alla góðu göngutúrana sem við fórum allar systurnar saman!! Til hamingju með daginn Benta....!!!!!
Miðvikudagur 30. september 2009
Jæja þá er veturinn í nánd, farið að kólna í lofti en mjög fallegt
veður samt. Ýmislegt var brallað í sumar eftir ferðina vestur í júní, því
það var farið á niðjamót á Seyðó í júlí og svo niðjamót á Borg í ágúst.
Mjög skemmtilegar helgar og vel mætt, allavega á Borg. Þann 25. ágúst lagði ég af stað til Bolungarvíkur í roki og rigningu, á Trooper, með Inga Svein, Alfreð Loga og Bola með mér. Keyrðum fljótlega inn í mjög gott veður, sól og blíðu og yndislegheit, svo ferðin var mjög skemmtileg. Stoppuðum í Daníelslundi á leið vestur og fengum okkur kakó og brauð og nutum góða veðursins. Bola 
þótti það nú ekki slæmt. Síðan var haldið áfram og stoppað víða til að njóta blíðunnar. Meðal annars í fjöruferð í djúpinu, og við sæluhúsið á Þorskafjarðarheiði, svo fátt eitt sé nefnt.

Skrifað í sandinn...............
Við Sæluhúsið.
Við dvöldum svo í viku á Bolungarvík, ég og strákarnir. Heiða kom til okkar í tvo daga og skemmti sér vel og síðan Guðný Lára og fjölskylda og hluti af hljómsveit um helgina, þar sem þau voru að spila eitt kvöld á Flateyri. Þetta var bara mjög gaman. Um mánaðarmótin þegar ég kom heim, hélt ég svo norður með Guðmundi og Írisi og var hjá Guðnýju og Stefáni í rúman hálfan mánuð. Mamma þurfti í aðgerð og ég ákvað að vera fyrir norðan og vera henni til aðstoðar á meðan þess þurfti. Fékk æðislegt veður allan tímann....Sólbað, kaffi og bóklestur fyrir utan kaffihús í miðbænum.....I Love it!!!
24. Júlí 2009 Föstudagur
Jóhönnu og Bola varðhund...það breytist samt á morgun því þá kemur Alfreð Logi heim.Er búin að kaupa notaða þvottavél sem Elli sækir fyrir mig á eftir, svo nú er komin ástæða til að redda sér ferð í heimsókn í Grafarvoginn, ef tækifæri gefst. Nú á að reyna ættarhitting í Birgis fjölskyldu þann 14. ágúst á Borg...gaman gamann.
Mynd: Jóhanna í ÖmmuBalabaði...
23. Júlí 2009 fimmtudagur!

Alex aðalgæi !!
á fimmtudeginum 16. júlí var svo lagt í ferð norður og daginn eftir austur á Seyðisfjörð þar sem niðjar ömmu og afa hittast árlega á Lunga hátíð, allir sem geta. Með í för voru Guðmundur Friðmar, Íris, Ingi Sveinn, Alfreð Logi, Boli, Bibbi og svo við Birgir. Það var mjög gaman, við fengum sér tjaldstæði fyrir okkur heima í garði hjá Halla og Helga og vorum stöðugt að borða góðan mat eldaðan af Halla og Alfreð stóra. Við lögðum svo af stað heim á mánudeginum 20. júlí en Ingi Sveinn varð eftir hjá frændum sínum og er að bíða eftir að komast á sjó með Alfreð, en það er búin að vera töluverð bræla. Hann hefur eitthvað farið í vinnu með Helga. Við Bibbi og Alfreð ásamt Bola urðum eftir á Akureyri í tvær nætur, komum heim í gærkvöldi en Alfreð varð eftir þar og kemur heim um næstu helgi. Svo kemur Jóhanna Mjöll til ömmu í dag og verður fram á mánudag, þar sem Jón og Maren fóru til Praag.
Bibbi við Skýjahöllina á Múlaveginum á Seyðisfirði.
Svo voru hreindýr við veginn á heimleið. Gaman þar sem Íris hafði aldrei séð Hreindýr!
10. Júlí 2009 Föstudagur
Hér er bara sól og blíða þessa dagana og alveg yndislegt að vera til.
8. Júlí Miðvikudagur
Húsið fyrir andlitslyftinguna
Eftir andlitslyftingu
Þegar lagt var af stað heim læddist nýr fjölskyldumeðlimur með:
Sætir saman Boli og MundiFleiri myndir í myndaalbúminu......
Fimmtudagur 29.apríl 2009
Nú er dálítill tími liðinn síðan ég bloggaði síðast og ýmislegt hefur gerst síðan þá:
Guðmundur, Íris og Aníta Björg fluttu inn í eitt herbergi hjá okkur og eru að leita af leigjanda í íbúðina á Selfossi, þar sem þau fá einbýlishús hér á Stokkseyri um mánaðarmótin maí-júní.
Fórum í ferminguna hjá Bjarti Ara þann á Sumardaginn fyrsta þann 23. apríl, þar var margt um manninn eða um 90 manns og mikið fínt og mikið gaman. Þann 26. daginn eftir að Ísland vann kosningarnar
fórum við svo í ferminguna hjá Alexöndru Heiðu, sem var líka voða fín og mjög gaman.Bibbi og Lilja flytja út héðan í dag og inn í stúdíóíbúðina hans Guðmundar á Selfossi (neðri hæðina).
Nú er stóri dagurinn hjá Inga Sveini frammundan þann 3. maí, eða á sunnudaginn, svo það er smá spenna í loftinu. Fermingin er alltaf nokkuð stór áfangi, því þá fannst manni að nú væri maður að verða fullorðinn. Veislan verður haldin hér heima, kaffi og með því og vonandi fáum við gott veður, það væri allavega ekki verra. Hér er búið að undirbúa og versla inn eins og hægt er, ætla að baka snúða á eftir en get svo lítið gert fyrr en á laugardaginn. Guðný og fjölskylda koma suður þann dag.
Vonandi sjáum við sem flesta á laugardaginn...alltaf gaman að fá fólk í heimsókn..

15. Apríl Miðvikudagur
Myndir af húsinu á Bolungarvík í myndaalbúminu...nýjar myndir innan úr húsinu síðan í byrjun apríl...
4. Apríl Laugardagur
Lögðum af stað á Bolungarvík um hálf fjögur þann 2. apríl á 11 ára afmæli Alfreðs Loga. Ég, Ingi, Alfreð, Guðmundur og Íris tókum saman þessa ferð á hendur til að koma rúmum, rúmfatnaði og ýmsu öðru dóti í húsið áður en ég leigi það út. Við fórum á nýja Astrónum (strumpastrætó
) hans Guðmundar með hestakerru úr Miðengi fulla af húsgögnum og öðru dóti. Pökkuðum í kerruna í roki og rigningu og keyrðum í bleytu, roki, snjóbyl.....Veðrið var hundleiðinlegt á leiðinni í borgarnes og í Hreðavatnsskála var brjálað rok. Við leituðum upplýsinga og fengum að vita að allar leiðir vestur væru ófærar vegna storms, skafrennings og hálku. Við ákváðum að fara eins langt og við kmumst, gista eina nótt og elta svo ruðningstæki morguninn eftir. Við náðum á Hólmavík og fengum þar gistingu á gistihúsi, heimilislegu, gömlu húsi. Þetta var eins og að koma upp á Hæðarenda, í gamlabæ, í gamla daga. Gestgjafinn, fullorðinn maður, var mjög þægilegur og við höfðum alla aðstöðu fyrir okkur. Íris hringdi á undan okkur og sagðist vera að leita af ódýrri gistingu og að við værum með sængur. Við fengum tvö stór og fín herbergi með góðum rúmum og borguðum 2200 fyrir fullorðna og 1000 fyrir strákana. Ekki dýrt fyrir þessa fínu og góðu aðstöðu. Við lögðum svo af stað í gær um átta leytið og tókum fram úr ruðningstækjum á Steingrímsfjaðraðheiði, sem var dálítið fúl. Eftir að henni sleppti var þetta eins og að sumardegi og gekk mjög vel. dótið var blautt og smá skítugt sumt af því en slapp alveg ótrúlega miðað við það sem við ímynduðum okkur að yrði. Erum semsé komin, búin að þrífa og gera kósý og njótum blíðunnar hér.
30. mars Mánuagur

Þá er að koma að því....ef færð og veður leyfa. Við ætlum að skreppa á Bolungarvík um næstu helgi (fimmtudag-föstudag) og verðum yfir helgina. Er farið að hlakk til að koma í kotið mitt og fara með rúm og rúmfatnað og ýmislegt annað dót. Vonandi verður veður og færð orðið skárra en búið er að vera nú undanfarna daga. Hér er samt bara sól og fínt, dálítið kalt samt.
Þriðjudagur 24. Mars 2009
Í dag fékk ég vondar fréttir....Hann Gúndi minn dó í dag. Hann ætlaði að flytja á elliheimilið á Reykhólum í dag ásamt henni Heiðu okkar en fékk heilablóðfall snemma í morgun. Ég er eiginlega ekki enn búin að ná þessu, hann var alltaf svo hress, hraustur og kátur hann Gúndi. Við hér, og þá aðallega ég, eigum eftir að sakna hans sárt. Betri vin er vart hægt að eiga enda hefur Gúndi verið einn minn allra besti vinur i 30 ár á 
þessu ári. Hann var fyrsta manneskjan sem ég kynntist þegar ég byrjaði að vinna á Sólheimum 79 og hefur allatíð verið trúr og tryggur vinur. Skemmtilegur að vera nálægt og spjalla við. það var alltaf gaman að hlusta á Gúnda segja sögur síðan í gamla daga, enda fór hann vítt um heim, ferðaðist og menntaði sig, sem var kannski ekki eins sjálfsagt á fimmta áratugnum eins og það er i dag. Gúndi fyllti i raun töluvert skarð i minu lifi og ég veit ég mun sakna hans mikið. En það er svo margt sem hægt er að rifja upp af samskiptunum við Gúnda, eða bara horfa á prakkarasvipinn á honum á góðri mynd og maður getur ekki annað en brosað. Það er einmitt það sem Gúndi hefði viljað, brosum og lifum lífinu lifandi á meðan við höfum það.
Miðvikudagur 11.mars 2009
Takk fyrir athugasemdina Mæja!!! Hér byðja allir að heilsa líka
Var að koma inn úr æðislegum, hálftíma göngutúr í Kjarnaskógi í yndislegu veðri. Fórum saman að ganga Ég, Jóa, Sigrún, Bentína og Andrea Lind og maður er bara endurnærður eftir gönguna. Gott eftir kyrrsetur yfir alþingi og fréttum, og prjónaskap undanfarinna daga.
Vonandi kemst ég bara í annan slíkan áður en heim verður haldið.
Var reyndar svo dugleg að ég setti auglýsingu á mbl.is, í leigudálkinn, í gær til að reyna að leigja út húsið á Bolungarvík um páskana. SVAKA DUGLEG...EKKI SATT?
